föstudagurinn 24. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 109
Samtals: 1420334
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Forvarnarbréf til foreldra
Bréf sent til foreldra og forráðamanna á Eyjafjarðarsvæðinu, en bréfið á að sjáfsögðu erindi við alla foreldra.

Ágætu foreldrar                                                                                                                                                 Dalvík 12. Júlí 2012

Eftirfarandi bréf er samvinnuverkefni Félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og Fiskidagsins mikla, sent ykkur til umhugsunar hvort börnin okkar séu óþarflega lengi úti á kvöldin án eftirlits dagana sem Fiskidagurinn mikli stendur yfir.
Við foreldrar njótum þeirra forréttinda að bera ábyrgð á börnunum okkar a.m.k. þar til þau eru 18 ára gömul. Við höfum þennan tíma til að njóta samverustunda, fylgjast með þroska þeirra, leiðbeina þeim og miðla gildum. Þessi tími kemur ekki aftur, hann verður ekki endurtekinn og ekki settur í bið. Það er ekki eftir neinu að bíða, grípum tækifærið og eigum með börnunum okkar góðan og skemmtilegan Fiskidag. Kannanir sýna að samverustundir með fjölskyldunni eru mikilvægar fyrir þroska barna okkar og einnig hefur komið fram að börn og unglingar vilja verja meiri tíma með foreldrum sínum en þau eiga nú kost á. Umhyggja, aðhald og eftirlit foreldra styrkir unglingana sem gerir þá líklegri til að standast betur neikvæðan hópþrýsting.
Sérstakar reglur samkvæmt barnaverndarlögum gilda um útivistartíma barna og ungmenna. Rétt er að benda á að þetta eru lög, ekki ábendingar. Í barnaverndarlögunum kemur fram að frá 1. maí til 1. september megi börn, 12 ára og yngri ekki vera á almannafæri eftir kl 22:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir miðnætti, nema þau séu á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Ekki þarf annað en að skoða á hvaða tímum sólarhrings börn byrja að fikta með áfengi og aðra vímugjafa, hvenær alvarlegar líkamsárásir og óæskileg kynlífsreynsla á sér stað, til að skilja að útivistarreglurnar eru ekki settar fram af neinni tilviljun
Með þessu bréfi viljum við kalla ykkur til samvinnu um að taka á þessum málum og fylgja eftir settum reglum um löglegan útivistartíma.
Börn og unglingar eiga ekki að vera úti eftirlitslaus seint að kvöldi og alls ekki eftir miðnætti, sérstaklega við aðstæður sem geta skapast í fjölmenni eins og í kringum Fiskidaginn mikla. Reynsla síðastliðinna ára hefur sýnt okkur að dagskráin gengur vel yfir daginn en vandamálin snúa flest að næturlífinu og umgengni þá, þess vegna er mikilvægt að við öll tökum höndum saman og pössum upp á börnin okkar. Vert er að minna á að við berum ábyrgð á ungmennum sem koma í heimsókn til barna okkar og eru ekki með forráðamönnum. Ef við leyfum börnum yngri en 18 ára að tjalda í garðinum okkar þurfum við að passa upp á útivistartíma þeirra.
Við íbúar Dalvíkurbyggðar sem að allflestir koma að hátíðinni með einum eða öðrum hætti viljum vernda hátíðina, þannig að við getum áfram boðið stolt upp á stórskemmtilegan Fiskidag. Því þurfum við að taka höndum saman, fylgja reglunum eftir og vera góð fyrirmynd fyrir gesti og ekki síst börnin okkar.

Foreldrar sýnum umhyggju í verki í sumar og á Fiskidaginn mikla á Dalvík