Frį forvarnarnefnd
Sjá bréf til foreldra í flettilista hér til hliðar.
Forvarnarnefnd Fiskidagsins mikla 2012.
Á síðasta ári hóf formlega störf forvarnarnefnd Fiskidagsins mikla sem er samvinnuverkefni Dalvíkurbyggðar og Fiskidagsins. Allir sem að málinu komu og það þekkja eru sammála um góður árangur hafi náðst og nú ætlum við að gera enn betur. Nú hefur nefndinni bæst liðstyrkur í Árna Jónssyni íþrótta og æskulýðsfulltrúa en sem fyrr sitja í nefndinni Eyrún Rafnsdóttir félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar, Júlíus Júlíusson framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla og Lilja Ólafsdóttir forvarnarráðgjafi.Það verður sífellt erfiðara fyrir hátíðir sem þessa að verjast heimsóknum hópa sem koma með öðru hugarfari en hinir. Undanfarin misseri hafa nokkrar hátíðir lagt upp laupana eða gert miklar breytingar á dagskránni og allri umgjörð. Áður en að þetta gengur lengra viljum við reyna að gera það sem við getum og gera tilraunir með hugmyndir sem komið hafa upp í umræðunni. Síðastliðin tvö ár hefur forvarnarnefnd hist á fundum, rætt málin og leitað til ýmissa aðila. Nefndin hefur sett saman nokkurs konar aðgerðaáætlun sem m.a. innifelur:
- Að eiga samvinnu með þjónustuaðilum með opnunartíma á nóttunni.
- Að allir foreldrar á Eyjafjarðarsvæðinu fá bréf frá forvarnarnefndinni.
- Að gæsla verði aukin enn meira og breyting gerð á tjaldsvæðunum.
- Aukna forvarnarkynningu í fjölmiðlum.
- Samvinnu með SAMAN hópnum.
Tilefnið er næturlífið eftir kl. tvö á nóttunni og framundir morgun og umgengni um bæinn á þeim tíma. Dagskráin yfir daginn og á kvöldin gengur mjög vel fyrir sig, og hafa skipuleggjendur fengið hrós fyrir allt sem snýr að allri dagskrá, skipulagningu, umferð og umgengni yfir daginn og fram yfir miðnætti. Í stuttu máli vilja bæjarbúar og þorri gesta njóta fjölskylduvænnar dagskrár Fiskidagsins mikla yfir daginn og fram undir miðnætti. Njóta síðan samvista við gesti og gangandi heimavið og aðrir vilja kíkja í miðbæinn og hitta vini og gamla kunningja og fara síðan á skikkanlegum tíma að sofa. Við leggjum okkar af mörkum með því að hafa þetta sjálf í huga og brýna vel fyrir okkar fólki að ganga hægt um gleðinnar dyr, ganga vel um og muna eftir náungakærleikanum. Börnum, 18 ára og yngri er óheimilt að tjalda á tjaldsvæðunum nema í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum. Við þurfum öll að standa saman í að fylgja reglum eftir. Börn mega ekki vera á ferli eftir tilsettan útivistartíma nema í fylgd með ábyrgum foreldrum eða forráðamönnum. Einnig skal skoða vel áður en íbúar leyfa og eða taka ábyrgð á aðilum yngri en 18 ára sem biðja um að fá að tjaldá lóðum í bænum.