laugardagurinn 25. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 24
Samtals: 1420560
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Matsešill 2011

Matseðill Fiskidagsins mikla 2011.  

Yfirkokkur dagsins er sem fyrr meistarinn sjálfur Úlfar Eysteinsson á 3 Frökkum

Aðstoðarkokkar:  Arnþór Sigurðsson og Stefán Úlfarsson

Allt brauð er í boði Myllunnar 

Allir drykkir er í boði Vífilfells 
Allt meðlæti: olíur, marinering, krydd, sósur og grænmeti er í boði Nettó.   

14 almennar grillstöðvar eru á svæðinu og á þeim er eftirfarandi: 
Bleikja í súrsætri sósu með karrý og hvítlauk – Samherji 
Þorskur í sweet chilisósu – Samherji
Rækjusalat/Blue cheese - Samherji


Eftirfarandi sérstöðvar fyrir utan 14 almennu stöðvarnar eru: 

Langgrillið –
Stærsta gasgrill á íslandi – 66" árgangurinn fer á kostum við grillið.
Fiskborgarar í brauði, með sósu – Samherji og Myllan.

Meistarastöð:
Meistarinn sjálfur Úlfar Eysteinsson.
Sasimi, hrátt hrefnukjöt og bleikja – Samherji og Hrefnuveiðimenn.

Rækjustöð:
  Rækjudrottningarnar Linda og Magga.
Nýveiddar rækjur í Kikkomansósu.

NINGS stöð:
Bjarni Óskarsson, ættingjar og vinir.
Austurlensk súpa með rækjum og steinbít að hætti Bjarna og Nings.

Grímsstöð:
Grímur Kokkur og hans fólk beint frá Vestmannaeyjum.
Grímur frumsýnir nýjan rétt og kemur einnig með plokkfiskinn sem sló í gegn 2008.

Harðfisks- og nígerísk stöð: Sjáið einstaklega fallega og litríka búninga starfsfólksins hér
Harðfiskurinn holli og bráðgott íslenskt smjör – Salka Fiskmiðlun og nígerískir vinir.

Síldar og Rúgbrauðstöð: Kolla Páls og síldarstúlkurnar.
Síld og heimabakað rúgbrauð með smjöri. Samherji og bestu rúgbrauðsbakarar landsins.

Kaffistöð: Rúbinkaffi í kroppinn – Kaffibrennslan á Akureyri.

Íspinnastöð: Samhentir.
Vinir Fiskidagsins mikla númer 1. gefa þúsundir íspinna.
Samhentir umbúðamiðlun hafa verið með okkur frá upphafi eða í 11 ár


Gasið á grillin er í boði Olís.