miðvikudagurinn 22. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 105
Samtals: 1419857
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Heišrun2006 II

Fiskidagurinn mikli heiðrar árið 2006:

Sigurð Haraldsson



Sigurður Haraldsson er heiðraður fyrir störf sín við sjávarútveg á Dalvík, sérstaklega fyrir farsælan skipstjórnarferil í fjóra áratugi. Sigurður hóf ungur sjósókn og var skipverji á ýmsum skipum, bæði við síldveiðar og bolfiskveiðar. Árið 1967 varð Sigurður skipstjóri hjá Útgerðarfélagi Dalvíkinga hf, sem nú er hluti af Samherja hf og starfaði hann þar í nær fjörutíu ár. Í júlí 2006 lét hann af skipstjórn á skuttogaranum Björgúlfi EA 312  en þar hafði hann verið skipstjóri frá því togarinn kom nýr til Dalvíkur eða í nær 30 ár. Við starfslok hans var það reiknað út að skipið hafði á þessum tíma aflað um 110.000 tonn sem er að útflutningsverðmæti um 30 milljarðar króna.