miðvikudagurinn 22. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 4
Samtals: 1419756
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Gisting-Tjaldsvęši

 Gisting - Tjaldsvæði og fleira   
Sjá flettilista

 

Tjaldsvæði Dalvíkur í Fiskidagsvikunni 2012.

Aðkoma: Hægt er að leggja húsbílum, vögnum og tjalda á svæðum við tónlistarskólann, Víkurröst, umhverfis sparkvöllinn og við Dalvíkurskóla. Fjórar akstursleiðir eru að tjaldsvæðum.

1.   Tjaldsvæði við Ásgarð: Við bæjarmörkin, áður en komið er að Olís. Ekið er inn á það svæði norðan við Ásgarð. Gott svæði fyrir stærri tæki. (sjá kort Inngangur 1)

2.   Tjaldsvæði Dalvíkur með rafmagni og þjónustubyggingu. Ekið er inn á mótsvið Olís. (sjá kort Inngangur 2)

3.   Tjaldsvæði Dalvíkur norðan við aðaltjaldsvæði. Ekið er inn á tjaldsvæði frá Svarfaðarbraut. (sjá kort Inngangur 3)

4.   Tjaldsvæði sunnan og ofan við sundlaug: Hægt verður að komast þangað frá Böggvisbraut. (sjá kort Inngangur 4)

 

Gjald fyrir tjaldsvæði er 5.000 kr. gildir einu hvort um er að ræða fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla, tjaldvagna eða tjöld. Gjaldið veitir leyfi til gistingar frá þriðjudeginum fyrir Fiskidaginn mikla til mánudags. Tekjur af tjaldsvæði sem verða til í fiskidagsvikunni renna til íþróttastarfs hjá Dalvík/Reyni.

Félagsmenn í Dalvík / Reyni munu sjá um gæslu og innheimtu á tjaldsvæðinu. Hægt er að ná í gæslufólk í síma 776-1944

 

Aðstaða: Tjaldsvæðin eru vel staðsett í göngufæri við hátíðarsvæði og alla þjónustu. Snyrtingar, sturtur, losunarbúnaður fyrir húsbíla og aðgangur að rafmagni er á tjaldsvæði (sjá kort inngangur 2). Því miður er ekki hægt að tryggja öllum gestum aðgang að rafmagni. Gestir eru beðnir um að nota rafmagnið á skynsaman hátt og lágmarka notkun á tækjum sem taka mikið rafmagn t.d. rafmagnsofnar. Gjald fyrir rafmagn er 700 kr. á sólarhring og greiðist í afgreiðslu Sundlaugar.

 

Öryggismál: Öryggissvæði verða máluð á tjaldsvæði til að tryggja það að slökkvilið og sjúkraflutningamenn geti komist að í neyðartilfellum.

Tjaldsvæðinu er skipt upp í merkt hólf. Mikilvægt er að gestir geri sér grein fyrir hvaða svæði þeir tilheyra komi til þess að kalla þurfi til neyðaraðstoð.

 

Til að auka öryggi gesta er mikilvægt að hafa hæfilegt bil á milli gistieininga.

 

Í neyðartilfellum skal hafa samband við neyðarlínuna 112.

 

Á tjaldsvæðum á Dalvík gilda landslög sem segja að þar er einstaklingum undir 18 ára aldri er ekki heimilt að tjalda nema í fylgd með foreldrum. Ungu fólki sem uppfylla ekki þessi skilyrði verður ekki heimilað að tjalda og gert að fjarlægja tjöld og annan búnað ef tjaldað er án leyfis. Aðeins er heimilt að tjalda á merktum tjaldsvæðum.

 
  • Bílastæði eru við grunnskólann, Víkurröst og sunnan knattspyrnuæfingasvæðis við innkeyrslu í bæinn. Athugið einnig önnur merkt bílastæði í öllum bænum sem sjá má á korti. Sýnum útsjónarsemi og tillitssemi við lagningu ökutækjanna og nýtum plássin vel. Bannað er að aka um tjaldsvæði að nóttu til. Ætlast er til að þeir sem geyma bíla sína inni á tjaldsvæðum hreyfi þá ekki fyrr en við heimferð.
 
  • Sundlaug Dalvíkur verður opin; virka daga frá 6:15 til 20:00, á laugardeginum kl. 08:00 - 20:00, á sunnudeginum er opið kl. 08:00 - 19:00. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna, 200 kr. fyrir börn 6 – 18 ára og frítt fyrir börn á leikskólaaldri.
 
  • Sturtur á neðri hæð í félagsaðstöðu UMFS verða opnar á neðri hæð sundlaugar milli kl. 17:00 og 19:00 föstudag og milli klukkan 09:00 og 12:00 og kl. 17:00 til 19:00 laugardag og sunnudag. Aðgangur er kr. 300 fyrir fullorðna, frítt fyrir börn á grunnskólaaldri og yngri.
 
  • Óskilamunum: verður safnað saman í Sundlaug Dalvíkur.
 

Gestum verður afhent kort og upplýsingar um tjaldsvæðin og fleira rétt fyrir utan bæinn við komuna til DALVÍKUR.

VELKOMIN Á TJALDSVÆÐI DALVÍKUR