miðvikudagurinn 22. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 20
Samtals: 1419772
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Ratleikur2011

Fjölskylduratleikurinn  2012 - 5. júlí - 10. ágúst.

Í ár þarf að finna út í hvar á Dalvík sex myndir eru teknar.

 • Vinningar að verðmæti 250.000

• Þátttaka ókeypis og öllum heimil.

• Komdu á Dalvík , taktu þátt og vertu í pottinum.
 

Fiskidagurinn mikli í Dalvíkurbyggð verður með  fjölskylduratleik í gangi áttunda sumarið í röð þar sem þátttaka er ókeypis og öllum heimil. Fjölskyldan fær sér göngutúr um Dalvík, leysir létta þraut í leiðinni og á möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Fyrsti vinningur er  úrvalsfiskur, nokkrar tegundur, að verðmæti 100.000 kr frá Samherja og Landflutningar Samskip flytja vinninginn heim að dyrum. 2. – 5. vinningur eru  ferðakistlar frá Promens, sem munu innihalda sýnishorn af matseðli Fiskidagsins mikla 2012 og fleira að verðmæti 25.000 hver. Hægt er að taka þátt í leiknum í allt sumar til kl 22.00 föstudaginn 10. ágúst, þátttökuseðlar liggja frammi á helstu þjónustustöðum á Dalvík og víðar.  Dregið verður úr réttum lausnum á Fiskidaginn mikla, laugardaginn 11. ágúst 2012. ATH. vinningshafar verða að vera á staðnum þegar dregið er.

Þátttökuseðlum skal skilað í N1 Dalvík.