föstudagurinn 03. september 2010
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 56
Samtals: 1080499
Nettó
Vķfilfell
KEA
Landflutningar
Marel
Sparisjóšur Svarfdęla
MS
Handverk
Oddi
N1
Vinįttukešjan

Vináttukeðjan 2010 - Fiskidagurinn mikli 10 ára afmæli - Setning Fiskidagsins mikla
 Vertu með og leggðu þitt af mörkum til að vekja athygli á Vináttu og náungakærleik.

Vináttukeðjan 2010

Á Vináttukeðjunni 2010 á 10 ára afmæli Fiskidagsins mikla fáum við góða gesti. M.a þeirra sem koma fram, Matthías Matthíasson, Gyða Jóhannesdóttir, Aron og Stéfán Þór, Íris Hauksdóttir og hljómsveit, Karlakór Dalvíkur, leikskólabörn úr Dalvíkurbyggð og Séra Pálmi Matthíasson verður ræðumaður Vináttukeðjunnar í ár. Við sleppum 5000 friðardúfublöðrum og fleira. Bókaútgáfan Salka er 10 ára um þessar mundir eins og Fiskidagurinn mikli af því tilefni ætlar Salka að gefa bækur sem heppni gestir Vináttukðejunnar munu hljóta. Frumflutt verður lag sem að Aron Óskarsson gefur Fsikideginum mikla í tilefni af 10 ára afmælinu

Vináttukeðjan hefst kl 18.00 á sviði í kirkjubrekkunni og lýkur kl 19.00 - Ekki missa af þessum viðburði



Árið 2007 hleyptum við af stokkunum nýjung sem ber heitið Vináttukeðjan, þar tóku þúsundir höndum saman og mynduðu risaknús í lokin. Knúsið entist alla helgina því það var verið að knúsast í tíma og ótíma sem var alveg yndislegt.
Það var frumflutt lag, Séra Karl Sigurbjörnsson og Vigdís Finnbogadóttir héldu ræðu um vináttuna, við slepptum 5000 blöðrum með mynd af friðardúfu, Guðrún Gunnarsdóttir söng, leikskólabörn sungu og fleira. Það var mál manna að þetta hafi verið hugljúf stund og hörðustu karlmenn hafi fengið tár í augun. Á vináttukeðjunni 2008 var Séra Jón Helgi Þórarinsson ræðurmaður meða þeirra sem komu fram voru Kristjana Arngrímsdóttir, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Karlakór Dalvíkur, leikskólabörn af Leikbæ, Fagrahvammi og Krílakoti  og fl. Á vináttukeðjunni 2009 var rithöfundurinn Þórainn Eldjárn ræðumaður, Álftagerðisbróðirinn Óskar Pétursson söng , einnig Friðrik Ómar Hjörleifsson, Karlakór Dalvíkur, fjölskylda Rúnars Júlíussonar,leikskólabörn af Leikbæ, Fagrahvammi og Krílakoti  og fl. Knúskorti dreift, friðarblöðrum sleppt og  flugeldum skotið. 


Knúsast á Vináttukeðjunni 2008