sunnudagurinn 19. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 22
Samtals: 1417674
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Ratleikur 07

Fjölskylduratleikurinn 2007  - 20. júlí - 10. ágúst.

Í ár þarf að finna út í hvaða götum myndir eru teknar.

  • Vinningar að verðmæti 200.000

• Þátttaka ókeypis og öllum heimil.

• Komdu á Dalvík , taktu þátt og vertu í pottinum.
 

Fiskidagurinn mikli í Dalvíkurbyggð verður með  fjölskylduratleik í gangi þriðja sumarið í röð þar sem þáttttaka er ókeypis og öllum heimil. Fjölskyldan fær sér göngutúr um Dalvík, leysir létta þraut í leiðinni og á möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Fyrsti vinningur er  úrvalsfiskur, nokkrar tegundur, að verðmæti 100.000 kr frá Samherja og Landflutningar Samskip flytja vinninginn heim að dyrum. 2. – 5. vinningur eru  ferðakör frá Sæplasti, sem munu innihalda sýnishorn af matseðli Fiskidagsins mikla 2007, að verðmæti 20.000 hver. Hægt er að taka þátt í leiknum í allt sumar til kl 22.00 föstudaginn 10. ágúst, þátttökuseðlar liggja frammi á helstu þjónustustöðum á Dalvík og víðar.  Dregið verður úr réttum lausnum á Fiskidaginn mikla, laugardaginn 11. ágúst 2007.

Þátttökuseðlum skal skilað í Olís Dalvík.