laugardagurinn 18. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 329
Samtals: 1417069
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Félagiš

Stofnendur félagsins " Fiskidagurinn mikli" og núverandi stjórn.

Júlíus Júlíusson  -   Framkvæmdastjóri
Þorsteinn Már Aðalsteinsson  -   Formaður stjórnar  -  Hafmár.
Ottó Jakobsson   -   Varaformaður stjórnar  -  O.Jakobsson.
Gunnar Aðalbjörnsson  -  Ritari.  
Hilmar Daníelsson  -  Gjaldkeri 
Guðmundur St Jónsson  -  Meðstjórnandi  -  Norðurströnd.
Sigurður Jörgen Óskarsson  -  Meðstjórnandi  -  Samherji
Óskar Óskarsson  -  Meðstjórnandi  -  Fulltrúi Landflutninga Samskipa og Ísstöðvarinnar.

" FISKIDAGURINN MIKLI "   S A M Þ Y K K T I R

1. grein.
Félagið heitir " FISKIDAGURINN MIKLI "
Heimili þess er við Hafnartorg á Dalvík

2. grein.
Tilgangur og markmið félagsins er að halda hátíðlegan "FISKIDAGINN
MIKLA " á Dalvík.

3. grein.
Stofnendur félagsins eru þeir sem undirrita lög þessi. Félagsmenn geta
orðið einstaklingar og félög sem áhuga hafa á og stuðla vilja að markmiði
félagsins sbr. 2. gr.
Umsókn um inngöngu í félagið skal senda stjórn þess sem tekur hana til
afgreiðslu.

4. grein.
Engin árgjöld eru greidd til félagsins og byggist rekstur þess á frjálsum
framlögum einstaklinga og félaga.

5. grein.
Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum kosnum á aðalfundi ár hvert.
Stjórninni er heimilt að leita til allra félaga vegna vinnu og skipulagningar
" FISKIDAGSINS MIKLA " og er innganga í félagið loforð um að vinna að
markmiði félagsins sbr. 2. gr.

6. grein.
Stjórnin ákveður sjálf starfstilhögun sína. Hún getur ráðið sér framkvæmda-
stjóra og aðra þá aðstoð sem hún ákveður hverju sinni.
Stjórnin er ábyrg fyrir fjárhagslegri afkomu starfseminnar. Hún skal ákveða
ramma hátíðahaldanna á Fiskidaginn mikla og kynna fyrir almenningi og
félögum markmið sín og framtíðarsýn á hátíðahöldin.

7. grein.
Aðalfund skal halda fyrir 15. mars ár hvert og hefur hann æðsta vald í
málefnum félagsins. Fyrir aðalfund skulu lagðir reikningar félagsins fyrir
liðið starfsár auk áætlunar fyrir komandi starfsár.

8. grein.
Samþykktum þessum er hægt að breyta á aðalfundi og þarf til þess meiri-
hluta stjórnar.Tillaga um slit á félagi þarf á sama hátt meirihluta atkvæða
stjórnar og ef til slita kemur renna allar eigur félagsins til Dalvíkurbyggðar

Þannig samþykkt á stofnfundi á Dalvík hinn 18. maí 2005