þriðjudagurinn 21. maí 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 74
Samtals: 1419437
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Fjölskylduratleikur
 

Fjölskylduratleikurinn 2006 10. júlí - 11. ágúst.

Í ár þarf að finna út hvað sex hús heita og við hvaða götu þau standa.

  • Vinningar að verðmæti 250.000

• Þátttaka ókeypis og öllum heimil.

• Komdu á Dalvík , taktu þátt og vertu í pottinum.
 

Fiskidagurinn mikli í Dalvíkurbyggð verður með  fjölskylduratleik í gangi annað sumarið í röð þar sem þáttttaka er ókeypis og öllum heimil. Fjölskyldan fær sér göngutúr um Dalvík, leysir létta þraut í leiðinni og á möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Fyrsti vinningur er  úrvalsfiskur, nokkrar tegundur, að verðmæti 100.000 kr frá Samherja og Landflutningar Samskip flytja vinninginn heim að dyrum. 2. – 6. vinningur eru 65 lítra ferðakistlar frá Sæplasti, frábærir ferðafélagar sem munu innihalda sýnishorn af matseðli Fiskidagsins mikla 2006, að verðmæti 30.000 hver. Hægt er að taka þátt í leiknum í allt sumar til kl 22.00 föstudaginn 11. ágúst, þátttökuseðlar liggja frammi á helstu þjónustustöðum á Dalvík og víðar.  Dregið verður úr réttum lausnum á Fiskidaginn mikla, laugardaginn 12. ágúst 2006.



Þátttökuseðlum skal skilað í Olís Dalvík.