föstudagurinn 03. september 2010
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 56
Samtals: 1080499
Nettó
Vķfilfell
KEA
Landflutningar
Marel
Sparisjóšur Svarfdęla
MS
Handverk
Oddi
N1
Fiskisśpukvöldiš mikla

Fiskisúpukvöldið mikla 2010-   Íbúar Dalvíkurbyggðar bjóða gestum og gangandi að smakka súpu.

 Allir velkomnir.


Vel tekið á móti gestum í Mímisvegi 15 - Mynd HSH.

Að kvöldi föstudagsins 6. ágúst milli 20.15 og 23.00 geta gestir og gangandi rölt í rólegheitum um bæinn og ef þeir sjá tvo logandi kyndla í garði eða við hús þá er um að gera að droppa inn og fá að smakka fiskisúpu og njóta þess að spjalla í rólegheitum við gestgjafana og gesti. Á þessu kvöldi tendra bæjarbúar ljósaseríur við hús sín og þá er ljúft að fá sér göngutúr um bæinn, skoða ljós og skreytingar, kíkja í heimsókn, smakka súpu og kynnast nýju fólki. Hver og einn er með sína uppskrift af fiskisúpu. Þetta er og mun verða partur af stemmningu Fiskidagsins mikla, þáttur í að sýna gestum byggðarlagsins gestrisni okkar og hluti af því að gera lífið skemmtilegt og mynda ljúfa og rólega stemmningu fyrir daginn stóra.

Eftirtalin fyrirtæki létta undir með heimamönnum í tengslum við súpukvöldið en stærstur er þó þáttur íbúanna.
Myllan með súpubrauði, Samherji með fiski, MS með rjóma, og Marel með súpubollum.
Myllan  -  Samherji  -  Mjólkursamsalan - Marel