miðvikudagurinn 19. júní 2013
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 255
Samtals: 1430446
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
KEA
Spariisjodur
Landsbankinn
Oddi
Mynd augnabliksins
Grillsveit yngri flokka ķ knattspyrnunni
Grillsveit yngri flokka ķ knattspyrnunni
Póstlistaskrįning
Netfang:

Afskrį

Könnun
Engin könnun skrįš
Fiskidagurinn mikli 2012

Fiskidagurinn mikli 8 - 11. ágúst 2013

Fiskur  -  Vinalegheit  -  Fiskisúpukvöldið -  Fjölskylduhátíð  -  Allt frítt á hátíðarsvæðinu

Mynd Jón Ingi Einarsson

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðleg í Dalvíkurbyggð, fyrsta laugardag eftir Verslunarmannahelgi. Fiskverkendur og fleiri framtakssamir í byggðarlaginu bjóða, með hjálp góðra styrktaraðila, landsmönnum öllum upp á dýrindis fiskrétti, milli kl. 11:00 og 17:00.

Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk.  Matseðilinn breytist ár frá ári þó ávallt sé boðið upp á ákveðna vinsæla rétti. Af þeim er helst að nefna fiskborgarana sem grillaðir eru á lengsta grilli á Íslandi. Grillið er færiband og á því stikna borgararnir 8 metra leið. Á fjórtán grillstöðvum víða um svæðið grilla heimamenn fjölbreyttar fisktegundir. Öllum réttum fylgja brauð og drykkir eins og hver getur í sig látið.

Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla bjóða íbúar byggðalagsins gestum og gangandi upp á fiskisúpu í heimahúsum og görðum. Afar vönduð og fjölbreytt skemmtidagskrá hefur prýtt hátíðina. 

KÍKIÐ ENDILEGA Á ELDRI FRÉTTIR

Nżjustu fréttir
Allar > 09.06.2013 08:00 -
Undirbśningur 2013
Undirbúningur fyrir Fiskidaginn mikla sem verður haldinn hátíðlegur í ágúst ( Fiskidagurinn mikli sjálfur 10. ágúst) gengur mjög vel. Það verður ýmislegt nýtt og verulega áhugavert á matseðlinum, vígsluathöfn á Kristjánsbúrinu, afmæliskemmtun vegna 30 ára afmælis Samherja og af því tilefni RISA flugeldasýning sem að enginn ætti að láta fram hjá sér fara, atriðin á sviðinu á laugardeginum líta afar vel út.......þetta er bara brotabrotabrot af því sem boðið verður uppá. Fylgist með hér á síðunni þegar nær dregur og þið munuð upplýst verða.

Allar > 15.08.2012 08:00 -
Ręša Katrķnar.
Kæru gestir Fiskidagsins mikla.
Í friðarkeðjunni í gær sagði biskupsígildið okkar hann Hjörleifur á Tjörn að Ísland væri land alsnægtanna. Og það er sko satt, Ísland er land mitt og ég er stolt og þakklát fyrir að hafa fengið að fæðast hér og alast hér upp.
....sjá ræðuna undir meira.


Allar > 15.08.2012 08:00 -
Frį Vegageršinni
Úr fréttatilkynningu Vegagerðarinnar - Margir á Fiskideginum mikla
Sé tekið mið af umferðarteljurum Vegagerðarinnar

“Með mjög grófum útreikningum og öllum fyrirvörum má gefa sér að allt að 25 þúsund manns hafi heimsótt Dalvík á Fiskideginum mikla í ár. Vegagerðin er með umferðarteljara á Hámundarstaðarhálsi austan Dalvíkur og annan teljara hinu megin bæjarins. Um fyrri teljarann fóru tæplega 15000 bílar dagana 10. - 12. ágúst. Og um hinn teljarann fóru nokkuð innan við 6000 bílar þessa daga. Ef tekið er meðaltal á fjölda í bíl og reynt að draga frá aðra umferð þá má áætla að allt að 25 þúsund manns hafi komið á Fiskidaginn mikla þessa daga. “ Nánar á www.vegagerdin.is



Allar > 15.08.2012 08:00 -
Vatnsbrunnur vķgšur
Vatnsbrunnur sem að Jóhannes Hafsteinsson frá Miðkoti smíðaði og Jón Ægir Jóhannsson brottfluttur Dalvíkingur gaf íbúum Dalvíkurbyggðar og gestum dagsins var vígður að morgni Fiskidagsins mikla. Séra Magnús prestur í Dalvíkurbyggð blessaði brunninn og Jón Ægir og fjölskylda vígðu hann. Jón Ægir ólst upp Dalvík og lék sér mikið á bryggjunum, Hann vildi að gestir Fiskidagsins mikla og íbúar og gestir almennt gætu notið sama góða vatnsins sem að hann drakk úr slöngunum á bryggjunni í uppvextinum. Brunnurinn er mikil snilldarsmíð og honum verður komið varanlega fyrir á góðum stað við verbúðirnar.

Jón Ægir Jóhannsson við vatnsbrunninn góða.

Allar > 15.08.2012 08:00 -
Ręša Svanfrķšar vegna hįkarlaveiša
Ræða Svanfríðar Jónasdóttur við heiðrun á Fiskidaginn mikla 2012
Fiskidagurinn mikli 2012 heiðrar alla þá sem stunduðu hákarlaveiðar og stóðu fyrir þilskipaútgerð bænda úr Svarfaðardal á seinnihluta 19. aldar.

Skoša allar fréttir