mánudagurinn 21. maí 2012
Notendanafn: Lykilorš:
Stefna
Heimsóknir
Ķ dag: 32
Samtals: 1278456
Nettó
Vķfilfell
Landflutningar
Marel
Sķminn
MS
Sparisjóšur Svarfdęla
N1
Oddi
KEA
Mynd augnabliksins
Lifandi sjįvardżr į fiskasżningunni
Lifandi sjįvardżr į fiskasżningunni
Póstlistaskrįning
Netfang:

Afskrį

Könnun
Kemur fjölskyldan žķn ķ įr
Jį, saman
Nei žvķ mišur

Sjį allar
Fiskidagurinn mikli 2012

Fiskidagurinn mikli 9 - 12. ágúst 2012 

Fiskur  -  Vinalegheit  -  Fiskisúpukvöldið -  Fjölskylduhátíð  -  Allt frítt á hátíðarsvæðinu 

Mynd Jón Ingi Einarsson

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðleg í Dalvíkurbyggð, fyrsta laugardag eftir Verslunarmannahelgi. Fiskverkendur og fleiri framtakssamir í byggðarlaginu bjóða, með hjálp góðra styrktaraðila, landsmönnum öllum upp á dýrindis fiskrétti, milli kl. 11:00 og 17:00. Markmið hátíðarinnar er að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. 
Matseðilinn breytist ár frá ári þó ávallt sé boðið upp á ákveðna vinsæla rétti. Af þeim er helst að nefna fiskborgarana sem grillaðir eru á lengsta grilli á Íslandi. Grillið er færiband og á því stikna borgararnir 8 metra leið. Á fjórtán grillstöðvum víða um svæðið grilla heimamenn fjölbreyttar fisktegundir. Öllum réttum fylgja brauð og drykkir eins og hver getur í sig látið. Kvöldið fyrir Fiskidaginn mikla bjóða íbúar byggðalagsins gestum og gangandi upp á fiskisúpu í heimahúsum og görðum. Afar vönduð og fjölbreytt skemmtidagskrá hefur prýtt hátíðina. 

KÍKIÐ ENDILEGA Á ELDRI FRÉTTIR

Nżjustu fréttir
Allar > 28.04.2012 08:00 -
Undirbśningur 2012
12. Fiskidagurinn mikli 2012

Undirbúningur fyrir 12. Fiskidaginn mikla 2012. gengur glimrandi vel og það er ljóst að það verður margt skemmtilegt að heyra, sjá og smakka að venju. Nýjungar verða á matseðlinum og það stefnir í að nýr réttur verði  verði frumsýndur....já já og margt fleira sem skýrist jafnt og þétt. 

Þeir sem vilja auglýsa í blaði dagsins ættu að hafa samband sem fyrst við Júlíus í síma 8979748 eða julli@julli.is

Fyrir nokkrum dögum tjáði Jón Baldvinsson ljósmyndari hér á Dalvík mér að hann haf fundið í fórum sínum myndir frá fyrsta Fiskideginum mikla 2001. Það er mikið gleðiefni því að við eigum afar lítið af myndefni frá þeim degi. Við eigum eftir að fara yfir þær og birta síðan síðar meir, kannski í Fiskidagsblaðinu í ár. En meðan að við bíðum set ég hér inn eina mynd frá Fiskideginum mikla númer 2, áríð 2002 



 
Allar > 11.08.2011 08:00 -
Fréttatilkynning eftir Fiskidaginn mikla

ü      Ljúft súpukvöld þar sem um 19.000 manns röltu um bæinn. 
ü      Mögnuð og fagmannleg flugeldasýning. 
ü      Fjöldaknús á vel heppnaðri Vináttukeðju. 
ü      4 kempum færðar þakkir. 
ü      Fiskidagurinn mikli styrkir Mæðrastyrksnefnd. 
ü      Áhugavert met – 65 mínútur. 

Talið er að um 29.000 manns hafi sótt Dalvíkurbyggð heim um helgina en þar var Fiskidagurinn mikli haldinn hátíðlegur. Umferð gekk vel miðað við fjölda. Afar lítið  var um árekstra milli fólks í næturlífinu og gekk það nánast áfallalaust þrátt fyrir mikið líf og að margir væri á ferðinni. Bærinn var ríkulega skreyttur og töldu margir að ganga um bæinn væri eins og að vera á risastórri skraut og listasýningu.

 


Allar > 11.08.2011 08:00 -
Fiskidagsręša Atla Rśnars
Ágætu matargestir og gestgjafar:

Þegar Júlli Fiskidagsfrömuður bað mig að segja fáein orð hér og nú svaraði ég því til að ég væri ekki forritaður til að flytja hátíðarræður. Það væri helst á færi bæjarstjóra, presta, menningarvita eða einhverra slíkra. Hann svaraði því til hið eina sem ég þyrfti að gera væri að tala vel um Dalvík og Dalvíkinga og svo mætti einhver vitleysa fylgja með.

Fyrst forskriftin var ekki flóknari en svo sló ég til því það er mér bæði heiður og ánægja að fá að tala vel um sveitunga mína. Reyndar er það svo að ég er hér í áttunda sinn á Fiskideginum mikla og hef hlustað endalaust talað vel um Dalvíkinga allt í kringum mig á tjaldsvæðinu. Dalvíkingar sjálfir heyra minnst af þessu hóli, enda eru þeir önnum kafnir að skreyta híbýlin, mála, þvo og skrúbba, bragðbæta súpur með koníaki og gera allt það sem þeir geta til að við, gestir þeirra, getum haft það sem notalegast. 




Allar > 09.08.2011 08:00 -
Flugeldasżning 2011
Flugeldasýning Fiskidagsins mikla í boði Samhera. Björgunarsveitin á Dalvík á mikið lof skilið fyrir mikla, góða og fagmannlega vinnu við Fiskidaginn mikla og flugeldasýninguna - Til hamingju Ísland.
Allar > 03.08.2011 08:00 -
Vega

Færeyski kórinn Tvöfaldur kvartettinn “Vega” á aðalsviðinu
Mennirnir níu frá Fuglafirði í Færeyjum hafa sungið saman í nokkur ár, mest til gamans. Kringum jólahátíðirnar hafa þeir þó sungið á dvalarheimilum fyrir aldraða í Eysturoy og á Norðoyggjum, og stundum hafa þeir verið beðnir um að syngja við hin ýmsu tilefni.
Mennirnir í tvöfalda kvartettinum “Vega” heita: Kristian Petersen, Heini Beder, Hjalti Lundsbjerg, Jógvan á Lakjuni, Samson í Lambanum , Jan Joensen, Páll Laksáfoss, Mouritz L. Mohr og Eyðun á Lakjuni.


Skoša allar fréttir